Sagan

Des 2002 Herrakvöld Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur Maggi og Rúnar spiluðu nokkur lög sem þeir voru búnir að breyta texta við og enginn hlustaði nema einn. Sá maður sem hlustaði var enginn annar en Ómar sem á einhvern óskiljanlegan hátt sá eitthvað spennandi við þennan dúett. Ómar tjáði þá skoðun sína að hann vildi endilega að þessir þrír drengir kæmu saman og skemmtu fyrst og fremst sjálfum sér við gítarspil og söng. Hvort það var bjórinn sem tók endanlega ákvörðun skal ekki fullyrða, en menn sam-mældust um að gera eitthvað á nýju ári.

Feb 2003 Loksins hittast þessir þrír þykku drengir og skemmta sér við að spila og syngja fjölbreitt lög. Hugmyndin framan af var að búa til skemmtilega söngbók, sem væri einungis hress lög, og héti "það er einginn helvítis stál og hnífur hér"

Mars 2003 Linda María Gunnarsdóttir kemur að máli við vinnufélaga sinn, Rúnar og segir að systir sín sé að fara að gifta sig, og fer þess á leit að Rúnar hjálpi henni við að semja ræðu. Rúnar tekur vel í það og kemur með þá hugmynd að Linda segði nokkur orð og svo kæmi hljómsveitin og segði allt sem hún vildi segja í söngtextum við þekkt lög. Linda tók þessar hugmynd fagnandi því hún var í raun ekkert áfjáð að fara að tala fyrir framan fjöldan allan af fólki. Hljómsveitin byrjaði að semja texta eftir að hafa fengið punkta frá Lindu Maríu, um systur sína Pöllu, sem var að fara að giftast Palla. Palla að giftast Palla, skemmtilegra verkefni hefði hljómsveitin ekki getað hugsað sér. Menn ákváðu að kalla sig "Hjónabandið" í tilefni af þessari uppákomu og æfðu stíft, undir stöðugum bjórgjöfum Lindu Maríu.

24-5-2003 Stóra stundin rann upp, og hljómsveitin "Hjónabandið" kom fyrst fram í brúðkaupsveislu í Stapanum, þar sem var hátt í 200 manns, íklæddir teigðum Njarðvíkurbúningum. Þetta fyrsta "gigg" sló í gegn í veislunni.
Flettingar í dag: 6
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 100
Gestir í gær: 19
Samtals flettingar: 139893
Samtals gestir: 18803
Tölur uppfærðar: 11.3.2010 01:32:13