05.03.2010 21:53
Tónleikar!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Breiðbandið mun verða með tónleika í Frumleikhúsinu í Keflavík þann 20. mars klukkan 20:00. Húsið opnar klukkan 19:00. Breiðbandið mun spila lög af næsta disk sveitarinnar sem er í vinnslu núna í samstarfi við upptökuheimilið Geimsteinn. Diskurinn "Breiðbandiði - Bætir á sig" mun koma svo út í sumar ef guð og lukkan leyfir. Einungis eru 130 miðar til sölu á þessa tónleika og því um að gera að tryggja sér miða strax. Miðarnir verða eingöngu seldir í forsölu og kosta 1500 krónur stykkið. Það er hverjum manni hollt að lyfta sér upp á þessum síðustu og verstu tímum og eru þá engir betri til þess en Breiðbandið.
Við lofum góðri skemmtun fyrir alla þá sem eru tilbúnir að skemmta sér.
Endilega svarið þessum pósti eða hafið sem fyrst samband við meðlimi sveitarinnar til að trygggja ykkur miða.
Kveðja
Breiðbandið

