27.07.2009 18:29

Nágranninn slær í gegn.

Viðbrögð við nýja laginu okkar hefa verið ótrúleg.  Þegar þetta er skrifað þá hafa yfir 500 manns séð myndbandið á youtube og óendanlegur fjöldi heyrt lagið á Facebook. 

Við strákarnir vorum stoppaðir útá götu í Hafnarfirði af ókunnugu fólki sem hafði séð myndbandð og var að dásama það.  Það kítlaði 3 lítil egóhjörtu gríðarlega. 

Við lögðum land undir fót síðasta laugardag og skemmtum í Hestheimum í skemmtilegu fertugsafmæli.  Mótttökurnar voru með því besta sem við höfum upplifað.

Frétt um lagið okkar kom á vef Víkurfrétta og er vísað á slóðina á youtube í fréttinni.  Endilega ef það eru einhverjir sem eiga eftir að heyra þetta þá leggið við hlustir.  Einnig viljum við biðja okkar fjölmörgu aðdáendur að dreifa þessu til allra sem þið þekkið. 



Kveðja
Breiðbandið.
Flettingar í dag: 14
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 57
Gestir í gær: 24
Samtals flettingar: 223724
Samtals gestir: 42620
Tölur uppfærðar: 7.2.2012 10:13:30