15.06.2009 20:13

Nágranninn.

Nágranninn.

Lagið okkar Nágranninn virðist hafa öðlast sjálfstætt líf á netinu.  Vinnufélögum okkar hefur borist textinn af laginu og er hann ekki alltaf réttur.  Fjölmargir hafa hlýtt á lagið á Facebook.  Við erum rífandi stoltir yfir því að vera orðnir "ruslpóstur" sem fólk sendir sín á milli. 
Fjölmargir eru búnir að birta þetta á bloggsíðum sínum en á fjölmörgum stöðum er höf. ókunnugur svo við verðum að láta vita að vitaskuld erum við sekir um að hafa samið þetta í góðum félagsskap Vikings-bjórs.

Ef allt gengur að óskum þá munum við fljótlega taka þetta lag upp í góðum gæðum.

Kveðja
Breiðbandið.

Flettingar í dag: 14
Gestir í dag: 6
Flettingar í gær: 57
Gestir í gær: 24
Samtals flettingar: 223724
Samtals gestir: 42620
Tölur uppfærðar: 7.2.2012 09:52:13