28.09.2008 21:27
Breiðbandið afslappað.
Jæja, nú er Breiðbandið afslappað og að jafna sig eftir að hafa sleppt sér í stúkunni á leik Keflavíkur og Fram um helgina. Vissulega súrt að sjá á eftir dollunni inn í Hafnarfjörð en svona er nú lífið einu sinni. Það verður bara meira gaman næsta sumar.
Annars erum við drengirnir að dunda okkur í hljóðverinu þessa dagana að taka upp grunna af lögum sem við erum með í smíðum, verðum að taka þetta upp strax því eins og allir vita þá erum við með gullfiskaminni. Stefnan er nú að koma þessu efni einhverntíman á geisladisk, nú eða vinyl en það virðist vera að detta í tísku núna. Það kemur í ljós síðar.
Smá spakmæli hér í lokin:
Mjór er mikils vísir en feitur er skemmtilegri.

Skrifað af Breiðbandið