Fréttir

20.4.2008

Bæjarstjórinn sannfærandi...sem bæjarstjórinn

Um helgina voru sýndar tvær sýningar af revíunni okkar ?Bærinn breiðir úr sér? og komust færri að en vildu.  Árni Sigfússon bæjarstjórinn okkar gerði sér nú lítið fyrir og leysti af leikarann sem túlkaði hann listavel fram að þessu en þurfti að bregða sér erlendis í nokkra daga.  Til þess að þurfa ekki að fella niður sýningar þá brást Árni við kallinu af miklum höfðingsskap og hugrekki því þarna er nú um ekkert smá hlutverk að ræða.
Það er engum blöðum um það að fletta að maður trúði því algerlega að þarna væri bæjarstjórinn á ferð og engin annar, svo sannfærandi var hann í þessu hlutverki.
Reyndar var hann nú ekki eini staðgengillinn því Júlíus gjaldkeri LK tók að sér hlutverk Ársæls sem leikur t.d. Garðar Thor Cortes og í SSS atriðinu.  Þess má geta að hann stóð sig með stakri prýði og sýndi það og sannaði að hann er ekki við eina fjölina felldur í listaheiminum.

Skrifað 20.4.2008 kl. 12:50 af Breiðbandið

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 13
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 123
Gestir í gær: 51
Samtals flettingar: 160963
Samtals gestir: 23791
Tölur uppfærðar: 7.9.2010 02:48:12