Fréttir
12.3.2008
Allir í leikhús.
Undanfarnir dagar hafa verið frábærir. Fólk er duglegt að hrósa okkur fyrir revíuna "Bærinn breiðir úr sér". Annað hvort er fólk almennt mjög ánægt eða svona rosalega kurteist við okkur og vill ekki særa okkur. Framundan eru sýningar fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag. Fólki þarf ekki að koma það á óvart að við sjáumst á meðal áhorfenda við og við. Því við skemmtum okkur rosalega vel að horfa á þetta þó svo við höfum skrifað þetta. Leikararnir standa sig svo ROSALEGA vel að við fáum sting niður í hjarta hvað þeir fara vel með verkið okkar.
Þetta hefur verið svo rosalega gaman fyrir okkur að við vonum bara að til okkar verði leitað aftur eftir nokkur ár. Það er reyndar með þeim skilyrðum að bærinn okkar geri eitthvað af sér sem vert er að skrifa um.
Við viljum skora alla að kíkja í leikhús.
Annars er það að frétta af hljómsveitinni að við tókum í fyrsta sinn upp með nýja trommaranum okkar og gekk það rosalega vel. Ómar er orðinn töframaður á tökkunum og meira segja var hægt að nota bassaspilið hjá Rúnari með aðstoð nýjustu tækni.
Endilega skrifið hér í athugasemdadálkinn og þá helst hvað við erum frábærir. Því eins og öllum dýrum að kattakyni finnst okkur rosalega gaman að vera strokið.
Breiðbandið.