Fréttir
7.3.2008
Frumsýning.
Þá er komið að því. Í kvöld á að frumsýna leikritið okkar "Bærinn breiðir úr sér" Við erum yfir okkur spenntir en það er enginn kvíði. Við erum búnir að kíkja nokkrum sinnum á æfingar og það er engin ástæða til að hafa áhyggjur. Það eru frábærir leikarar sem taka þátt í þessu og Helga hefur stjórnað þeim eins og herforingi. Á general prufunni vorum við að springa úr monti. Þvílíkur hlátur. Og lokaatriðið..vááá.
Þeim sem mun leiðast á þessari sýningu eru ekki viðbjargandi.
Breiðbandið vill þakka Leikfélaginu kærlega fyrir að fá þessa "kolklikkuðu" hugmynd að biðja okkur um að semja Revíu. Við vissum ekkert hvað við ættum að gera en með aðstoð góðs hóps þá er komin frábær sýning.
Allir - fjölmennið