Fréttir

6.3.2008

Styttist í frumsýningu!

Nú styttist aldeilis í frumsýningu á revíunni okkar "Bærinn breiðir úr sér" sem við sömdum fyrir Leikfélag Keflavíkur en frumsýningin er annað kvöld.  Við erum orðnir mjög spenntir en við vorum einmitt á "general-prufu" í gærkveldi og skemmtum okkur mjög vel eins og aðrir áhorfendur sem voru þar staddir.  Viðbrögð áhorfenda styrktu okkur í þeirri trú að þarna væri á ferðinni mjög skemmtilegt verk sem allir ættu að skemmta sér yfir, hvort sem þeir eru héðan úr bæjarfélaginu eða utanaðkomandi.  Við höfðum það einmitt að leiðarljósi þegar við sömdum verkið að hafa þetta ekki of "local"
Grein um leikritið birtist í dag á mbl.is en slóðin á hana er hér:

http://mbl.is/mm/folk/frettir/2008/03/06/syna_reviu_um_baejarlifid/



Það er ljóst að þegar handritið fór frá okkur þá voru þetta bara fullt af stöfum á blöðum en í meðförum Helgu Brögu leikstjóra og Leikfélags Keflavíkur þá lifnar þetta við og tekur flugið og stefnir hátt.
Leikfélagið hefur á að skipa mjög sterkum hóp leikara og annars fólks sem vinnur á bak við tjöldin og hefðum við ekki getað kosið betri flokk til að koma þessu stykki á fjalirnar.  Við erum rífandi stoltir og hrærðir yfir að fá að taka þátt í þessu.

Skrifað 6.3.2008 kl. 9:54 af Breiðbandið

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 14
Gestir í dag: 11
Flettingar í gær: 88
Gestir í gær: 30
Samtals flettingar: 161366
Samtals gestir: 23914
Tölur uppfærðar: 10.9.2010 04:11:32