Fréttir

28.7.2009

Lagið á mp-3 formati

Fyrir þá sem vilja eignast lagið okkar Nágranninn á mp3 formati er bent á að undir síðunni hérna að ofan "Tónlistin"  er mappa sem heitir Nágranninn og þar er svo lagið.

Endilega niðurhalið laginu og setjið á I-podanna ykkar.

Kveðja
Breiðbandið.

Skrifað 28.7.2009 kl. 19:21 af Breiðbandið

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

27.7.2009

Nágranninn slær í gegn.

Viðbrögð við nýja laginu okkar hefa verið ótrúleg.  Þegar þetta er skrifað þá hafa yfir 500 manns séð myndbandið á youtube og óendanlegur fjöldi heyrt lagið á Facebook. 

Við strákarnir vorum stoppaðir útá götu í Hafnarfirði af ókunnugu fólki sem hafði séð myndbandð og var að dásama það.  Það kítlaði 3 lítil egóhjörtu gríðarlega. 

Við lögðum land undir fót síðasta laugardag og skemmtum í Hestheimum í skemmtilegu fertugsafmæli.  Mótttökurnar voru með því besta sem við höfum upplifað.

Frétt um lagið okkar kom á vef Víkurfrétta og er vísað á slóðina á youtube í fréttinni.  Endilega ef það eru einhverjir sem eiga eftir að heyra þetta þá leggið við hlustir.  Einnig viljum við biðja okkar fjölmörgu aðdáendur að dreifa þessu til allra sem þið þekkið. 



Kveðja
Breiðbandið.

Skrifað 27.7.2009 kl. 18:29 af Breiðbandið

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

23.7.2009

Nágranninn.

Þá er nýja lagið hjá Breiðbandinu tilbúið.  Lagið er hægt að hlusta á á Youtube og ef slegið er inn Breiðbandið í leitarvélinni þá kemur það upp.

Góða skemmtun
Breiðbandið.

Skrifað 23.7.2009 kl. 23:01 af Breiðbandið

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

22.7.2009

Upptökur

Jæja nú fer að færast fjör í leikinn því við félagarnir höfum verið í Upptökuheimilinu Geimsteini við upptökur á laginu Nágranninn og er lagið í "masteringu" þessa dagana.  Þegar því lýkur ætlum við að koma laginu í spilun sem víðast og leyfa öllum að njóta.

Skrifað 22.7.2009 kl. 20:45 af Breiðbandið

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 36
Gestir í dag: 13
Flettingar í gær: 123
Gestir í gær: 51
Samtals flettingar: 160986
Samtals gestir: 23796
Tölur uppfærðar: 7.9.2010 03:36:47