Færslur: 2008 September

28.09.2008 21:27

Breiðbandið afslappað.

Jæja, nú er Breiðbandið afslappað og að jafna sig eftir að hafa sleppt sér í stúkunni á leik Keflavíkur og Fram um helgina.  Vissulega súrt að sjá á eftir dollunni inn í Hafnarfjörð en svona er nú lífið einu sinni.  Það verður bara meira gaman næsta sumar.
Annars erum við drengirnir að dunda okkur í hljóðverinu þessa dagana að taka upp grunna af lögum sem við erum með í smíðum, verðum að taka þetta upp strax því eins og allir vita þá erum við með gullfiskaminni.  Stefnan er nú að koma þessu efni einhverntíman á geisladisk, nú eða vinyl en það virðist vera að detta í tísku núna. Það kemur í ljós síðar.
Smá spakmæli hér í lokin:
Mjór er mikils vísir en feitur er skemmtilegri.
    Flettingar í dag: 13
    Gestir í dag: 6
    Flettingar í gær: 57
    Gestir í gær: 24
    Samtals flettingar: 223723
    Samtals gestir: 42620
    Tölur uppfærðar: 7.2.2012 09:02:39