Færslur: 2008 Ágúst

29.08.2008 20:52

Ljósanótt

Breiðbandið verður með opna æfingu í Svarta Pakkhúsinu fimmtudaginn fyrir Ljósanótt frá klukkan 21:00 og svo aftur á laugardeginum frá 14:30 og fram að þolinmæðismörkum.

 

Gestum og gangandi gefst nú einstakt tækifæri til að heyra lög sem eru í vinnslu og einnig lög sem eru óútgefin og hafa af einhverjum ástæðum endað í skúffunni.  Breiðbandið kemur yfirleitt bara fram í einkasamkvæmum eins og brúðkaupum, árshátíðum,  afmælum ofl.   Sveitin hefur yfirleitt komið sér hjá því að koma fram opinberlega þar sem meðlimirnir eru einstaklega latir og telja allt slíkt vera bara "vesen"  Þetta er því tækifæri sem gestir Ljósanætur  mega ekki láta fram hjá sér fara.  Myndlistarhópurinn Sunnan 9 er með sýningu á sama stað alla daga ljósnætur svo listviðburðurinn verður veisla bæði fyrir eyru og augu.

 

Þessi fimm ára hljómsveit hefur komið víða við á fjölbreyttum ferli.  Gleðitríóið hefur spilað bæði hér heima og erlendis við einstaklega góðan orðstýr.  Sveitin hefur gefið út tvo geisladiska sem í dag eru svo til ófáanlegir.    

Ferill sveitarinnar náði nýjum hæðum síðasta vetur þegar hún var fengin til að semja "bæjar-revíu" sem Leikfélag Keflavíkur setti upp í leikstjórn Helgu Brögu Jónsdóttur.  Leikritið "Bærinn breiðir úr sér" sló vitaskuld í gegn og er ein vinsælasta sýning sem Leikfélagið hefur sett upp síðustu ár.

Þetta er fréttatilkynningin sem send hefur verið út.  Við viljum hvetja alla hina fjölmörgu aðdáendur sveitarinnar að kíkja á okkur.

26.08.2008 20:42

Ljósanætur undirbúningur.

Undirbúningur fyrir atriði Breiðbandsins á Ljósanótt er í fullum gangi.

Breiðbandið ætlar að vera með opna æfingu.  Við munum koma okkur fyrir í þægilegum stellingum í Svarta Pakkhúsinu og leyfa gestum og gangandi að sjá hljómsveitina á bakvið tjöldin.  Við munum spila þarna lög sem eru í vinnslu og einnig munu inná milli renna nokkrar ódauðlegar perlur.  Gestum býðst til að fá sér sæti með sveitinni og ræða málin.  Skemmtulegu fólki verður jafnvel boðið uppá bjór.

    Flettingar í dag: 13
    Gestir í dag: 6
    Flettingar í gær: 57
    Gestir í gær: 24
    Samtals flettingar: 223723
    Samtals gestir: 42620
    Tölur uppfærðar: 7.2.2012 09:02:39