Færslur: 2008 Maí

29.05.2008 14:15

Nú getið þið dánlódað fyrri disknum okkar "Af Fullum Þunga" sem kom út árið 2004 hérna á síðunni.  Einhverra hluta vegna gat ég ekki sett lögin í rétta röð, en þið verðið bara að dánlóda allri súpunni og raða þessu upp í tölvunni hjá ykkur sjálf.  Þið getið smellt á "Tónlistin" hér fyrir ofan eða smellt á myndina hér til hliðar til þess að sækja þessa klassík.

Njótið vel!   







22.05.2008 13:02

Hmmmm???

Jæja, lífið gengur sinn vanagang hjá Breiðbandinu.  Við erum að taka upp og semja ný lög.  Við frumfluttum eitt lag í brúðkaupi á laugardaginn og það gerði bara ágætis lukku.  Svo erum við að spila í 100 ára afmæli á morgun.

Hvenær skyldi Breiðbandið svo taka þátt í Eurovision?  Þegar þeir koma út úr skápnum, læra eitt lag utanað, fara í ræktina á sama tíma eða Ómar blæs á sér hárið.  Sem sagt aldrei.
Já, að muna texta.  Akkelisarhæll Breiðbandsins, minnir mig á það sem Kalli Karlremba sagði einu sinni:

    Flettingar í dag: 13
    Gestir í dag: 6
    Flettingar í gær: 57
    Gestir í gær: 24
    Samtals flettingar: 223723
    Samtals gestir: 42620
    Tölur uppfærðar: 7.2.2012 09:28:09