Færslur: 2008 Apríl

30.04.2008 09:51

Nýtt lag með Breiðbandinu

Jæja, þá er komið að því.  Sumarsmellurinn í ár er kominn á myspace síðuna okkar: http://www.myspace.com/breidbandid
Þar getið þið hlustað á lagið.  Endilega látið okkur vita hvernig ykkur finnst.  Lagið heitir "Nágranninn" og mun vonandi koma út á næsta geisladiski hljómsveitarinnar.  Þetta er jafnframt fyrsta lag hljómsveitarinnar sem er tekið er upp í nýju og glæsilegu stúdíói okkar "Stúdíó Spik"
Og endilega hafið þennan málshátt í huga þegar þið hlustið á lagið: "Ávallt skal hlusta á lag til enda."

23.04.2008 21:20

Heimsfrægð eða dauði

Nú er sýningum á leikritinu okkar að ljúka.  Síðasta sýningin verður næstkomandi föstudag.  Að okkar mati þá hefur þessi frumraun okkar á ritvellinum slegið í gegn.  Nú er bara spurning hvort þetta sé ekki bara fyrsti þáttur af þríleik eins og er svo vinsælt að gera í dag.  Samanber hringadrottnissögu, og fleiri góð verk.

Okkar ískalda mat er að þetta hefur slegið í gegn, en kannski eru allir bara svo kurteisir að segja bara eitthvað gott við okkur.

Næsta laugardag munum við fara í óvissuferð með þessu skemmtilega fólki í leikfélaginu.  Við erum hreinlega gapandi yfir því hvað leikararnir og Helga hafa náð að gera mikið úr þessum skrítnu hugmyndum sem við fengum.  

Okkur hlakkar mikið til að skemmta okkur með þessu góða fólki. 


20.04.2008 12:50

Bæjarstjórinn sannfærandi...sem bæjarstjórinn

Um helgina voru sýndar tvær sýningar af revíunni okkar ?Bærinn breiðir úr sér? og komust færri að en vildu.  Árni Sigfússon bæjarstjórinn okkar gerði sér nú lítið fyrir og leysti af leikarann sem túlkaði hann listavel fram að þessu en þurfti að bregða sér erlendis í nokkra daga.  Til þess að þurfa ekki að fella niður sýningar þá brást Árni við kallinu af miklum höfðingsskap og hugrekki því þarna er nú um ekkert smá hlutverk að ræða.
Það er engum blöðum um það að fletta að maður trúði því algerlega að þarna væri bæjarstjórinn á ferð og engin annar, svo sannfærandi var hann í þessu hlutverki.
Reyndar var hann nú ekki eini staðgengillinn því Júlíus gjaldkeri LK tók að sér hlutverk Ársæls sem leikur t.d. Garðar Thor Cortes og í SSS atriðinu.  Þess má geta að hann stóð sig með stakri prýði og sýndi það og sannaði að hann er ekki við eina fjölina felldur í listaheiminum.

17.04.2008 08:01

Sýningum er ekki lokið


Ótrúlegar fréttir!  Árni Sigfúson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar hefur ákveðið að leika sjálfan sig í Revíunni "Bærinn breiðir úr sér".  Árni mun leika, syngja og jafnvel taka nokkur vel valin dansspor í sýningunum, en hann leysir af á föstudags- og laugardagskvöldið.  Nú er bara að tryggja sér miða.  Hvað næst?  Ólafur F. Magnússon í Spaugstofunni?

16.04.2008 15:54

Sýningum lokið!

Jæja, nú er leikritið búið og þeir sem misstu af því - Sorrý.

Spurning hvort við semjum ekki kvikmyndahandrit næst.  Svona stríðs, bíla, geim, kafara, sjúkrahúss, söngleik.

Landið er að fara á hausinn ef marka má fréttir, allt honum Davíð Oddsyni að kenna er manni sagt.  Voða gott að geta kennt einhverjum um, manni lýður svo miklu betur í sálinni.

Við strákarnir erum að leggja lokahönd á sumarsmellinn í ár.  Það verður sjálfsagt hægt að fá hlusta á lagið á heimasíðunni þegar það verður klárt.  Hver vill ekki heyra það?

08.04.2008 11:12

Lokasýningar

Þá er komið að lokasýningarhelgi á leikritinu okkar Bærinn breiðir úr sér.  Við erum búnir að fá frábærar viðtökur og erum mjög sáttir við samstarfið við Leikfélagið og leikstjórann.  Ef einhverjir eiga eftir að sjá þetta þá er síðasti séns núna um helgina.

    Flettingar í dag: 13
    Gestir í dag: 6
    Flettingar í gær: 57
    Gestir í gær: 24
    Samtals flettingar: 223723
    Samtals gestir: 42620
    Tölur uppfærðar: 7.2.2012 09:02:39