Fréttir

25.3.2008

Fleiri sýningar

Nú um helgina verður leikritið okkar sýnt fimmtudag, föstudag, laugardag, og sunnudag. 

Við erum oft spurðir af því hvort við séum að leika í þessu eða spila undir en í raun er okkar vinnu lokið.  Við einungis sömdum þetta leikrit og hefðum ekkert bætt þann góða hóp sem leikur í þessu verki okkar.  Við eigum það nú til að bregða okkur í leikhúsið og horfa á eina og eina sýningu enda erum við rífandi ánægðir með frammistöðu leikarana og fáum ekki nóg af þessu leikriti. 
Við hlægjum alltaf jafn mikið og það verður að segjast að sýningin er búin að slípast mikið til og orðin miklu betri.  Brandararnir eru að skila sér miklu betur útí sal núna en td. á frumsýningu.  Þá kom það leikurunum soldið á óvart hvað var mikið hlegið.  Örugglega orðnir hundleiðir á bröndurunum.

En þetta er eitthvað sem enginn má missa af.

Breiðbandið.

Skrifað 25.3.2008 kl. 16:30 af Breiðbandið

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

12.3.2008

Allir í leikhús.

Undanfarnir dagar hafa verið frábærir.  Fólk er duglegt að hrósa okkur fyrir revíuna "Bærinn breiðir úr sér".  Annað hvort er fólk almennt mjög ánægt eða svona rosalega kurteist við okkur og vill ekki særa okkur.  Framundan eru sýningar fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag.  Fólki þarf ekki að koma það á óvart að við sjáumst á meðal áhorfenda við og við.  Því við skemmtum okkur rosalega vel að horfa á þetta þó svo við höfum skrifað þetta.  Leikararnir standa sig svo ROSALEGA vel að við fáum sting niður í hjarta hvað þeir fara vel með verkið okkar. 

Þetta hefur verið svo rosalega gaman fyrir okkur að við vonum bara að til okkar verði leitað aftur eftir nokkur ár.  Það er reyndar með þeim skilyrðum að bærinn okkar geri eitthvað af sér sem vert er að skrifa um.

Við viljum skora alla að kíkja í leikhús.

Annars er það að frétta af hljómsveitinni að við tókum í fyrsta sinn upp með nýja trommaranum okkar og gekk það rosalega vel.  Ómar er orðinn töframaður á tökkunum og meira segja var hægt að nota bassaspilið hjá Rúnari með aðstoð nýjustu tækni.

Endilega skrifið hér í athugasemdadálkinn og þá helst hvað við erum frábærir.  Því eins og öllum dýrum að kattakyni finnst okkur rosalega gaman að vera strokið.

Breiðbandið.

Skrifað 12.3.2008 kl. 21:08 af Breiðbandið

Bein slóð á færslu

8 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

8.3.2008

Stórkostleg frumsýning !

Í gærkveldi rann upp stóra stundin en þá var frumsýnd revían okkar "Bærinn breiðir úr sér".  Það er vægt til orða tekið að segja að sýningin hafi verið skemmtileg því stemmingin í salnum var stórkostleg.  Leikararnir fóru allir með tölu á kostum og áhorfendur hreinlega öskruðu af hlátri, klöppuðu og stöppuðu til að tjá hrifningu sína.
Við félagarnir erum gríðarlega ánægðir með útkomuna því hún fór svo sannarlega fram úr okkar villtustu vonum en þær voru nú miklar fyrir.  Í lok sýningarinnar voru allir aðstandendur sýningarinnar hylltir með standandi lófataki og var það stórkostleg stund.  Helga Braga á mikið hrós skilið fyrir leikstjórnina því ekki hefði verið hægt að fá betri leikstjóra til að stýra þessu verki og koma okkar húmor alla leið.
Breiðbandið þakkar fyrir sig.

Skrifað 8.3.2008 kl. 13:26 af Breiðbandið

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

7.3.2008

Frumsýning.

Þá er komið að því.  Í kvöld á að frumsýna leikritið okkar "Bærinn breiðir úr sér"  Við erum yfir okkur spenntir en það er enginn kvíði.  Við erum búnir að kíkja nokkrum sinnum á æfingar og það er engin ástæða til að hafa áhyggjur.  Það eru frábærir leikarar sem taka þátt í þessu og Helga hefur stjórnað þeim eins og herforingi.  Á general prufunni vorum við að springa úr monti.  Þvílíkur hlátur.  Og lokaatriðið..vááá.

Þeim sem mun leiðast á þessari sýningu eru ekki viðbjargandi.

Breiðbandið vill þakka Leikfélaginu kærlega fyrir að fá þessa "kolklikkuðu" hugmynd að biðja okkur um að semja Revíu.  Við vissum ekkert hvað við ættum að gera en með aðstoð góðs hóps þá er komin frábær sýning.

Allir - fjölmennið

Skrifað 7.3.2008 kl. 18:00 af Breiðbandið

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

6.3.2008

Fyrirgefðu Heimir L. Fjeldsted!!!

Í dag var umfjöllun um leikritið okkar í þremur fjölmiðlum.  Víkurfréttum, Tíðindunum og í Morgunblaðinu.  Einnig var brot úr morgunblaðsgreininni á vefnum hjá mbl.is
http://www.mbl.is/mm/folk/frettir/2008/03/06/syna_reviu_um_baejarlifid/

Það sem mér finnst alveg frábært að einhver tók sér tíma í að gagnrýna það sem þar kom fram.  

http://hlf.blog.is/blog/hlf/entry/466117/ 
Heimir L. Fjeldsted sem kynnir sig sem mann sem ekki getur hætt að taka sig ekki of alvarlega, óskar þess að ég sé ekkert að þvælast í Reykjavík og ætlar að leggja af sínar ferðir í Reykjanesbæ.

Endilega kíkið á þetta.  Ég er rífandi stoltur af því að umsagnir mínar í blöðum geti fengið menn til að geysast fram á ritvöllinn.

Með kærri kveðju og vinsemd og virðingu
Rúnar I. Hannah.

Skrifað 6.3.2008 kl. 22:52 af Breiðbandið

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

6.3.2008

Þarf að segja meira?

Skoða nánar

6.3.2008

Styttist í frumsýningu!

Skoða nánar

2.3.2008

Enn meiri athygli

Skoða nánar

1.3.2008

Vika í frumsýningu

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 6
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 100
Gestir í gær: 19
Samtals flettingar: 139893
Samtals gestir: 18803
Tölur uppfærðar: 11.3.2010 01:32:13