Færslur: 2008 Febrúar

27.02.2008 07:24

Mynd frá Góugleði.

Hérna er mynd frá því við skemmtum um helgina.  250 hressar konur og einn prestur sem veitti áfallahjálp.
Við skemmtum okkur konunglega og takk fyrir okkur.  Áfram Fylkiskonur.

26.02.2008 23:12

Munið - við erum tónlistarmenn.


Við bíðum ennþá eftir aukinni kvennhylli.

25.02.2008 20:11

Breiðbandið bætir við sig trommara.

Undirbúningur fyrir næsta disk Breiðbandsins er í fullum gangi.  Upptökur eru hafnar og af því tilefni bættum við við okkur trommara.  Þessi trommari er fyrirmynd annara trommara því hann mætir alltaf á réttum tíma og er aldrei með leiðindi.  Drekkur ekki frá okkur bjórinn en getur að vísu ekki keyrt okkur um.



Þessi trommari er vitaskuld bara hugbúnaður enda er það þekkt staðreynd að trommarar eru aldrei til fyrirmyndar í sambandi við mætingu né drykkju.

24.02.2008 09:57

Kvennakvöld Fylkis




Í gærkvöldi skemmtum við á Góu gleði Fylkiskvenna.  Þar var mikið fjör og um 250 konur sem skemmtu sér vel.  Eins og vanalega þá var Gunni rótari að keyra og þar sem álagið var það mikið eftir að hafa skemmt konunum þá stoppuðum við á Fjörukránni á leiðinni heim.  Þar drukkum við einn eða tvo kalda.

Það styttist óðfluga í það að leikritið okkar verður frumsýnt og erum við orðnir mjög spenntir.  Við vonum bara að áhorfendur munu skemmta sér eins vel og við gerum þegar horfum á æfingar.

20.02.2008 16:29

Nýjir gestir

Það eru tveir búnir að skrifa í gestabókina okkar á þessari nýju síðu.
Við erum djúpt snortnir.  Getum ekki varist tárum.

17.02.2008 20:57

Myndir frá Minneapolis

Nú erum við búnir að setja inn myndir frá ferðinni sem við fórum til Minneapolis í desember 2006 en við fórum þangað til þess að spila á Jólafestivali i Mall of America.  Þetta var með skemmtilegri ferðum sem við höfum farið.  Við spiluðum þarna á stærsta sviðinu af þrem sem eru þarna í Mall of America.  Eitthvað virðist kaninn hafa misskilið íslensku stafina því við vorum kynntir sem hljómsveitin Breiobandio.  Fólkið bjóst kannski við þrem súkkulaðibrúnum latino gæjum en svo komu bara þrír snjóhvítir feitir lúðar frá Íslandi.

16.02.2008 12:50

Nýjar myndir frá Horsens

Við erum búnir að setja inn myndir sem voru teknar af okkur í Horsens þegar við skemmtum á þorrablóti Íslendingafélagsins þar. 
Allar myndirnar eru teknar af heimasíðu félagsins www.ifhorsens.dk. Við munum seinna vonandi bæta við myndum sem við tókum sjálfir í þessari ferð.


Hérna erum við með Rótaranum/bílstjóranum okkar Árna Birni.  En hann stjanaði þvílíkt við okkur að setjum núna alltaf upp þær kröfur þegar við spilum erlendis að við fáum bílstjóra og penthouse, og vitaskuld helling af bjór.

15.02.2008 22:03

Ný heimasíða tekin í notkun

Jæja, nú höfum við tekið nýja heimasíðu í notkun en þessi er töluvert notendavænni en sú gamla en það varð til þess að við nenntum ekki að skrifa neitt inn á gömlu síðun og enn síður setja inn myndir á hana því það var svo mikið vesen.  Þessi hins vegar er mjög þægileg og þar sem við nennum ekki neinu veseni þá gæti þetta orðið til þess að við sinnum heimasíðunni betur fyrir vikið.  Við erum búnir að setja inn eitthvað af myndum í myndasafnið og erum að vinna í því að setja inn fleiri þannig að það er þess virði að kíkja reglulega hingað.
Endilega sendið okkur kveðju í gestabókina.
Þó það líti út fyrir að "það sé ekki kjaftur í húsinu" þá erum við þarna í "sándtjékki" fyrir upptökutónleikana
"Breiðbandið - Léttir á sér"

13.02.2008 16:47

Best að búa í Reykjanesbæ

Breiðbandið er einstaklega ánægt með að búa ekki í Reykjavík í ljósi síðustu atburða þar.  Revían sem við skrifuðum að miklum hluta í kringum jól væri ónýt ef jafn tíð stjórnarskipti yrðu hér í bænum líkt og er í Reykjavík. 

Réttast væri að senda bænum þakkarbréf.

Hérna er mynd af okkur frá Þorrablóti í Horsens.  Dagskráin var soldið stíf svo við mættum í náttfötum til að skemmta.

12.02.2008 21:37

Fullt að ske hjá strákunum !!

Nú erum við búnir að skila af okkur handritinu af revíunni sem við sömdum fyrir Leikfélag Keflavíkur en vinnuheitið er "Bara Blátt áfram".  Nú bíðum við spenntir eftir að mæta á frumsýninguna og sjá útkomuna.  Við höfum svo sem nóg að gera í millitíðinni því nú er vertíð hjá okkur í að skemmta á þorrablótum og árshátíðum.  Við erum þéttbókaðir næstu vikurnar og eru nú þegar farnir að bóka næsta sumar.
Þetta hljómar eins og hjá ferðaskrifstofu.
    Flettingar í dag: 13
    Gestir í dag: 6
    Flettingar í gær: 57
    Gestir í gær: 24
    Samtals flettingar: 223723
    Samtals gestir: 42620
    Tölur uppfærðar: 7.2.2012 09:28:09