Fréttir

4.8.2010

Breiðbandið bætir á sig

Þessa dagana erum við að leggja lokahönd á nýja diskinn.  Vonandi fer hann í framleiðslu í þessari viku.  Þá er von á að hann komist til landsins fyrir Ljósanótt. 

Við erum búnir að fá mikið af snillingjum til að hjálpa okkur og erum við sannfærðir um að diskurinn verði sannkallað tímamótaverk.  Allavega fyrir okkur

Breiðbandið.

Skrifað 4.8.2010 kl. 22:11 af Breiðbandið

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

4.7.2010

Popppunktur

Loksins er komið að Popppunktsþættinum sem við erum í.  Eins og þeir sem þekkja okkur vita þá var það búinn að vera áralangur draumur okkar að komast í þáttinn.  Við sömdum lagið Popppunktur sem fjallar um þennan draum okkar og heyrðu snillingarnir Dr. Gunni og Felix af því og buðu okkur í þáttinn.  Erum við þeim ævinlega þakklátir fyrir.

Ekki missa af þessum stórkostlega viðburði.
Breiðbandið.

Skrifað 4.7.2010 kl. 11:19 af Breiðbandið

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 4
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 130
Gestir í gær: 51
Samtals flettingar: 160608
Samtals gestir: 23645
Tölur uppfærðar: 4.9.2010 01:11:09